+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskóli Vesturlands

Fjölbrautaskóli Vesturlands
Vogabraut 5
300 Akranesi

Sími: 433 2500
Bréfasími: 431 2046
skrifstofa@fva.is
http://www.fva.is/
Skólameistari
Hörður Helgason

Tengiliður innritunar:
Skrifstofa
skrifstofa@fva.is
433 2500
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Starfsnám

Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins og vef Iðunnar fræðsluseturs.

-
Námsbraut: Heilbrigðis- og félagsgreinar

Heilbrigðis- og félagsgreinar

 
Námslína: Sjúkraliðabraut

Námið veitir nemendum fræðilegan grunn og faglega verkþjálfun til þess að starfa á sjúkrastofnunum sem löggiltir sjúkraliðar. Meðalnámstími er sex annir í skóla og 16 vikna starfsþjálfun á sjúkrastofnun undir leiðsögn. Starfsheiti sjúkraliða er lögverndað.

Upplýsingar skóla um námið

Nemandi sem innritast á starfsnámsbraut skal hafa lokið námi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og útskrifast með einkunn 5 eða hærri í íslensku og stærðfræði.

Nemandi sem ekki uppfyllir þessi skilyrði getur öðlast rétt til að hefja nám á starfsnámsbrautum með því að ljúka fyrst almennri námsbraut við skólann.

Á sumum starfsnámsbrautum er aðeins unnt að taka við takmörkuðum nemendafjölda. Ef ekki er hægt að veita inngöngu öllum umsækjendum sem uppfylla ofangreind inntökuskilyrði þá er höfð hliðsjón af einkunn fyrir ástundun eða skólasókn, og námsárangur í öðrum greinum þar sem það á við, þegar valið er milli umsækjenda.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 6 til 12
Einingar: 120

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Blandað nám
Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir