Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.
Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.
Nemandi sem innritast á fálagsfræðabraut skal hafa lokið námi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og útskrifast með einkunnir sem eru að lágmarki eins og taflan sýnir.
danska 5
enska 6
íslenska 6
stærðfræði 5
náttúrufræði 5
samfélagsfræði 6
Heimilt er að veita nemendum sem hafa góða einkunn fyrir ástundun undanþágu þótt þeir hafi of lága einkunn í einni grein.
Nemandi sem ekki uppfyllir inntökuskilyrði á bóknámsbrautir til stúdentsprófs getur öðlast rétt til að hefja nám á þeim með því að ljúka fyrst almennri námsbraut við skólann og áföngum númer 102 eða 103 í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði.
Dagskóli