-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Skrifstofu- og verslunargreinar
Námslína: Verslunarbraut
Náminu er ætlað að veita nemendum grunnþekkingu og færni á sviði almennra þjónustustarfa með áherslu á verslunarstörf, auk almennrar menntunar í bóklegum greinum. Einnig að þjálfa verklega færni og hæfni sem nýtist til starfa á atvinnumarkaði. Námið er alls 77 einingar og skipulagt sem fjögurra anna nám, þar af vinnustaðanám 10 vikur.
Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði
Nemandi skal hafa lokið grunnnámi þjónustugreina.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 1 til 2
Einingar: 22
Námsgerð í boði:

Dagskóli
Tengiliður náms:
Guðlaug Pálsdóttir áfangastjóri
gp@fss.is
http://www.fss.is/namid/brautir/VE22/