+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Grundargötu 44
350 Grundarfirði

Sími: 430 8400
Bréfasími: 430 8401
fsn@fsn.is
http://www.fsn.is/
Skólameistari
Jón Eggert Bragason

Tengiliður innritunar:
Pétur Ingi Guðmundsson
petur@fsn.is
4308400
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Stúdentsnám

Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila  möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.

Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.


 

-
Námsbraut: Náttúrufræðibraut

Náttúrufræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur undir nám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggja á góðri undirstöðu í náttúruvísindum. .Nám á náttúrufræðibraut tekur að jafnaði 4 ár og er fjöldi eininga 140 sem skiptast í kjarna (98 ein.), kjörsvið (30 ein.) og frjálst val (12. ein.). Í boði eru nokkrar mismunandi línur á brautinni og má m.a. nefna eðlis- og efnafræði, eðlisfræði, náttúrufræði, líffræði, lífvísindi og tölvur. Brautirnar eru ólíkar eftir skólum og nauðsyn að kynna sér betur framboðið á vefsíðum skólanna.

 
Námslína: Náttúrufræðigreinar

Upplýsingar skóla um námið

Kjörsvið felur í sér sérhæfingu í náttúrufræðigreinum í samræmi við markmið brautarinnar. Nemandi velur sér ekki færri en þrjár greinar sem kjörsviðsgreinar, annaðhvort viðbót við kjarnagreinar eða nýjar greinar. Samanlagt nám í grein á kjörsviði og í kjarna verði að lágmarki 9 einingar. Nemandi á náttúrufræðibraut getur einnig tekið allt að 12 eininga nám á kjörsviðum annarra brauta sem hluta af sínu kjörsviði. Þó mega einingar í grein ekki vera færri en 9.

Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði

Skólaeinkunin 6 eftir 10. bekk grunnskóla í eftirtöldum greinum:

Íslensku

Ensku

Stærðfræði

Dönsku

Lengd náms og einingar

Annir: frá 8 til 8
Einingar: 140

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Blandað nám
Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir