
Markmið fornámsins er að efla og styrkja sjálfstraust nemenda, að finna og ráða bót á hugsanlegum hindrunum sem staðið hafa í vegi fyrir eðlilegum framförum í námi í grunnskóla og að nemendur öðlist þann grunn í kjarnagreinum (íslensku og stærðfræði) sem nauðsynlegur er fyrir áframhaldandi nám. Brautin er ætluð þeim nemendum sem ekki hafa náð fullnægjandi árangri á grunnskólaprófi.
Reglur um almenna braut – fornám (AF)
Almenn braut - fornám er sérskipulögð braut fyrir nemendur sem þurfa að bæta undirbúning sinn til frekara náms. Nemendur sem hafa fengið undir 5 í meðaltali samræmdrar einkunnar og skólaeinkunnar í þremur samræmdum greinum eða fleirum og tvær þeirra eru stærðfræði, íslenska eða enska, eru skráðir á almenna braut – fornám.
Strangar reglur um ástundun og mætingar gilda í fornámi og bæði nemandi og foreldrar/forráðamenn hans þurfa að skuldbinda sig til að fara eftir þeim reglum.
Í fornámu er mikil áhersla lögð á að styðja við nemendur og veita hverjum og einum þá aðstoð sem þeir þurfa.
Gert er ráð fyrir að nemendur á fornámsbraut verði í sérstökum námstækniáfanga tvisvar sinnum í viku þar sem umsjónarkennari þeirra þjálfar þá í góðum vinnubrögðum og aðstoðar við verkefnavinnu eftir þörfum.
Inntökuskilyrði af almennri braut – fornámi á aðrar brautir:
Eftir að námi á fornámsbraut lýkur geta nemendur haldið áfram námi á almennri braut (AB) og lokið henni á 1-2 önnum.
Dagskóli