+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga
v/Ægisgötu
625 Ólafsfirði

Sími: 4604240
Bréfasími:
lara@mtr.is
http://www.mtr.is/
Skólameistari
Lára Stefánsdóttir

Tengiliður innritunar:
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir
villa@mtr.is
4604240
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga er dreifnámsskóli í Ólafsfirði sem mun hefja starf nú í haust. Skólinn mun starfa eftir nýjum lögum um framhaldsskóla sem gefur aukið svigrúm í námsvali til stúdentsprófs og framhaldsskólaprófs. Skólinn býður upp á metnaðarfullt nám með fjölbreyttum kennsluháttum sem miða að virkni nemenda og sjálfstæði. 

 

Miðað er við að nemandinn ljúki námi í skólanum á samfelldum vinnudegi þar sem námið skiptist í nám undir verkstjórn kennara, sjálfstætt nám með aðgengi að námsaðstoð eða fjarnám. 

 

Stefnt er að því að allt námsefni utan kennslubóka sé í kennslukerfi skólans ásamt verkefnum og öðrum upplýsingum. Á sama hátt er stefnt að því að öll skilaverkefni sem það á við verði skilað í sama kennslukerfi.

 

Einkunnarorð skólans eru: Frumkvæði - Sköpun - Áræði

Í nýjum skóla er mikilvægt að starfsmenn og nemendur hafi frumkvæði til að efla skólann og skapa honum sess. Sköpun er grunnþáttur enda lögð áhersla á listir og menningu í skólastarfinu. Sköpun einskorðast þó ekki við slíka þætti heldur hvatt til þess að skapandi hugsun sé leiðarljós í öllu námi. Áræði er nauðsynlegt til að hafa þor til að feta nýjar slóðir sem Menntaskólinn á Tröllaskaga byrjar að troða í haust.

 

Athugið: Stefnt er að því að nemendur sem þurfa að fara um Ólafsfjarðarmúla til skóla eða í starfsnám geti stundað nám í fjarnámssetri á Dalvík þegar veður hamlar ferðum frá Dalvík en fresti starfsnámi sé ferðin frá Ólafsfirði.

Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir