-
Námsleið: Stúdentsnám
Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.
Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.
-
Námsbraut: Félagsfræðabraut
Félagsfræðabraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna undirstöðuþekkingu í bóklegu námi með áherslu á samfélagsgreinar. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum á sviði félagsvísinda. Nám á félagsfræðabraut tekur að jafnaði 4 ár og er fjöldi eininga 140 sem skiptast í kjarna (98 ein.), kjörsvið (30 ein.) og frjálst val (12. ein.). Í boði eru nokkrar mismunandi línur á brautinni og má m.a. nefna alþjóðamál, félagsfræði og hagfræði. Brautirnar eru ólíkar eftir skólum og nauðsynlegt er að kynna sér betur framboðið á vefsíðum skólanna.
Námslína: Félagsgreinar
Upplýsingar skóla um námið
Námi á félagsfræðibraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna undirstöðuþekkingu í bóklegu námi með áherslu á samfélagsgreinar. Hér fá nemendur undirbúning fyrir háskólanám einkum á sviði félagsvísinda. Námið er skipulagt sem 8 anna viðfangsefni.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 8 til 12
Einingar: 140
Námsgerð í boði:

Dagskóli

Fjarnám

Blandað nám
Tengiliður náms:
Hannes Í. Ólafsson kennslustjóri
hannes@fa.is
http://www.fa.is/fjolbrautaskolinn/brautir/felbraut/