+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Ármúla 12
108 Reykjavík

Sími: 581 4022
Bréfasími: 568 0335
fa@fa.is
http://www.fa.is/
Skólameistari
Gísli Ragnarsson
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Nám fyrir fatlaða

Fötluðum nemendum stendur til boða nám á svokölluðum starfsbrautum. Hér til hliðar má velja Starfsbraut úr undirvalmynd Nám fyrir fatlaða til upplýsingar.

-
Námsbraut: Starfsbraut

Starfsbrautir framhaldsskóla eru ætlaðar nemendum með fötlun sem hafa ekki forsendur til þess að stunda nám á öðrum námsbrautum framhaldsskólanna. Kennt er samkvæmt einstaklingsnámskrá og leitast er við að efla tengsl við aðrar brautir skólans og veita nemendum tækifæri til að verða hluti af samfélagi skólans. Í skólanámskrá hvers skóla skal koma fram hvernig skólinn skipuleggur nám á starfsbraut.

Námskrá og brautarlýsing fyrir starfsbraut.

Sótt er um á eyðublöðum viðkomandi framhaldsskóla frá 20. janúar til 28. febrúar 2011.

 
Námslína: Starfsbraut

Starfsbrautir framhaldsskóla eru ætlaðar nemendum með fötlun sem hafa ekki forsendur til þess að stunda nám á öðrum námsbrautum framhaldsskólanna. Kennt er samkvæmt einstaklingsnámskrá og leitast er við að efla tengsl við aðrar brautir skólans og veita nemendum tækifæri til að verða hluti af samfélagi skólans. Í skólanámskrá hvers skóla skal koma fram hvernig skólinn skipuleggur nám á starfsbraut.

Upplýsingar skóla um námið

Nemendur eiga kost á allt að fjögurra ára framhaldsnámi við FÁ að loknu grunnskólanámi. Nemendur útskrifast með sama einingafjölda og aðrir nemendur skólans eða um 140 einingar en námið sem liggur að baki hverri einingu getur haft ólíkar áherslur. Námið skiptist í tvær annir á hverju skólaári

Hlutverk og markmið brautarinnar er
að nemendur fái tækifæri til að stunda nám við hæfi innan félagsheildar fjölbrautaskóla til að viðhalda og auka þekkingu sína og færni til að takast á við viðfangsefni daglegs lífs


Kennslan er byggð á
námsáætlunum fyrir nemendahópa og / eða einstaklinga sem byggir annars vegar á námskránni og hins vegar á upplýsingum um þarfir nemenda og óskir og mati á stöðu þeirra í námi og þroska.

Nemendum er að miklu leiti kennt  saman en þar sem því verður viðkomið sækja þeir nám í einstök fög þar sem námsefnið er aðlagað fyrir nemendur ef þess er þörf.

Lögð er áhersla á að nemendur á brautinni einangrist ekki heldur séu þeir hluti af skólaheildinni. Meðal annars með því  að þeir séu sem sýnilegastir í skólaumhverfinu og taki sem virkastan þátt í félagslífi á skólatími. Leitað er eftir samstarfi við aðra kennara skólans um að þeir hafi opinn hug fyrir möguleikum á þátttöku sérnámsbrautar í almennum námsgreinum. Sérnámsbrautarnemandi á fyrsta ári á einnig kost á því að eiga ófatlaðan skólafélaga

Mat
á námi og framförum nemenda er framkvæmt jafnt og þétt yfir önnina og fá nemendur afhenta samantekt í lok hverrar annar

 
Námskrá sérnámsbrautar er byggð á

  • aðalnámskrá framhaldsskólanna, almennum hluta
  • námskrá fyrir starfsbrautir framhaldsskóla

auk þess

  • námskrá sérnámsbrautar FÁ
  • starfsáætlun
  • einstaklingsnámskrám

 
Námsþættir skiptast í

  • bóklegar greinar
  • verk- og listgreinar
  • íþróttir og heilsurækt
  • tölvunotkun

 
Kennslan getur farið fram sem
einstaklingskennsla
í hópi með öðrum nemendum á sérnámsbraut
í áföngum með öðrum nemendum skólans
 
Kennslustundafjöldi er
um 30 kennslustundir á viku. Nemendur á sérnámsbraut fara ekki í próf og kennt er alla prófdaga samvæmt stundaskrá. Að öðru leiti gildir skóladagatal FÁ

Kennslan fer fram
í stofu m V-14, A-10 og A-11. Nemendur nýta sér aðrar kennslustofur innan FÁ og íþróttahús Fram. Einnig sundlaug  í Safamýrarskóla, kennslueldhús KHÍ og almenningssundlaugar.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 8 til 12
Einingar: 140

Námsgerð í boði:

Dagskóli

Tengiliður náms:

Halldór Bjarnason kennslustjóri


http://www.fa.is/fjolbrautaskolinn/brautir/sernamsbraut/
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir