Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
Brautin er ætluð starfsfólki í grunnskóla eða leikskóla sem annast gangagæslu, þrif og almenn eftirlitsstörf. Náminu er ennfremur ætlað að búa nemendur undir frekara nám á brautum fyrir leiðbeinendur í leikskólum eða stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Meðalnámstími er tvær annir í skóla og þriggja vikna starfsþjálfun í leik- eða grunnskóla.