+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Starfsnám

-
Námsleið: Starfsnám

Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins og vef Iðunnar fræðsluseturs.

-
Námsbraut: Sjávarútvegs- og siglingagreinar

Sjávarútvegs- og siglingagreinar

 
Námslína: Vélstjórnarnám

Vélstjórnarnám er stigskipt og veitir atvinnuréttindi til starfa að fullnægðum skilyrðum um siglingatíma og starfsþjálfun sem mælt er fyrir um í lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa og annarra skipa.

Nám af vélstjórnarbraut A veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun réttindi til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kW. Meðalnámstími er 2 annir í skóla.

Nám af vélstjórnarbraut B veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW vélarafl og minna. Meðalnámstími er 6 annir í skóla.

Nám af vélstjórnarbraut C veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafl minna en 3000 kW. Meðalnámstími er 9 annir í skóla.

Nám af vélstjórnarbraut D veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun ótakmörkuð vélstjórnarréttindi. Meðalnámstími er 10  annir í skóla.


Skólar sem bjóða upp á þetta nám:

Tækniskólinn

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Menntaskólinn á Ísafirði

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir