+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Starfsnám

-
Námsleið: Starfsnám

Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins og vef Iðunnar fræðsluseturs.

-
Námsbraut: Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar

Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar

 
Námslína: Mjólkuriðn

Löggilt iðngrein. Markmið námsins er að nemendur öðlist þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til alhliða starfa í mjólkurbúum þar sem helstu verkþættir eru: ostaframleiðsla, smjörframleiðsla, móttaka mjólkur og vélasalur og sýrðar vörur. Meðalnámstími er fjögur ár. Nemendur hefja námið með gerð námssamnings við mjólkurbú á Íslandi og starfa þar í um tvö ár. Þá tekur við 20 mánaða dvöl í Danmörku, þar sem nemendur starfa á mjólkurbúum í fjóra mánuði, en síðan tekur við bóklegt nám á Dalum Tekniske Skole í 16 mánuði. Náminu lýkur með sveinsprófi.
Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir