Hér er útskýrt í hvaða framhaldsskólum nemendur í tilteknum grunnskólum eiga forgang á skólavist í.
Nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eiga rétt á skólavist í framhaldsskóla. Því er nemendum í tilteknum grunnskólum tryggður forgangur að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum með hliðsjón af nágrenni við skóla, hefðum og samgöngum. Hver framhaldsskóli verður að ráðstafa að minnsta kosti 45% lausra nýnemaplássa fyrir nemendur í forgangshópi reynist umsóknir svo margar. Þrátt fyrir forganginn er nemendum frjálst að sækja um þann skóla sem þeir helst vilja (sérhæft nám er t.d. ekki í boði í öllum skólum). Hyggilegt er að hafa forgangsskóla í aðal- eða varavali ef þar er í boði nám sem fellur að óskum og undirbúningi umsækjanda.
Meðfylgjandi listi sýnir í hvaða framhaldsskólum nemendur einstakra grunnskóla eiga forgang við innritun á haustönn 2010.
Til nánari skýringar:
Nánari upplýsingar um innritunarmálin og einstaka framhaldsskóla eru á www.menntagatt.is/innritun
Reykjavík, Mosfellsbær og Seltjarnarnes
Menntaskólinn í Reykjavík
Austurbæjarskóli, Hagaskóli, Landakotsskóli, Tjarnarskóli, Grunnskóli Seltjarnarness
Kvennaskólinn
Hagaskóli, Landakotsskóli, Tjarnarskóli, Grunnskóli Seltjarnarness
Tækniskólinn
Skóli atvinnulífs alls landsins. Almennar brautir fyrir nemendur úr grunnskólum vestan Elliðaáa
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Álftamýrarskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Austurbæjarskóli, Hvassaleitisskóli, Suðurhlíðarskóli
Menntaskólinn Hraðbraut
Sérhæft námsskipulag
Verzlunarskóli Íslands
Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Hvassaleitisskóli, Réttarholtsskóli
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Ingunnarskóli, Langholtsskóli, Laugalækjarskóli, Norðlingaskóli
Menntaskólinn við Sund
Árbæjarskóli, Foldaskóli, Langholtsskóli, Laugalækjarskóli, Vogaskóli, Ingunnarskóli, Réttarholtsskóli, Norðlingaskóli
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Hólabrekkuskóli, Seljaskóli, Ölduselsskóli
Borgarholtsskóli
Borgaskóli, Engjaskóli, Foldaskóli, Hamraskóli, Húsaskóli, Klébergsskóli, Rimaskóli, Víkurskóli, Lágafellsskóli, Varmárskóli
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Klébergsskóli, Varmárskóli, Lágafellsskóli
Vesturland
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Brekkubæjarskóli, Grundaskóli, Grunnskólinn í Borgarnesi, Laugagerðisskóli, Varmalandsskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar, Auðarskóli, Heiðarskóli Leirársveit, Reykhólaskóli
Menntaskóli Borgarfjarðar
Grunnskólinn í Borgarnesi, Laugagerðisskóli, Varmalandsskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Grunnskóli Grundarfjarðar, Grunnskóli Snæfellsbæjar, Grunnskólinn í Stykkishólmi, Grunnskólinn í Tálknafirði, Grunnskóli Vesturbyggðar
Vestfirðir
Menntaskólinn á Ísafirði
Grunnskóli Bolungavíkur, Grunnskólinn á Ísafirði, Grunnskóli Önundarfjarðar, Grunnskólinn á Suðureyri, Grunnskólinn á Þingeyri, Reykhólaskóli, Grunnskólinn á Hólmavík, Súðavíkurskóli, Grunnskólinn í Tálknafirði, Grunnskóli Vesturbyggðar
Norðurland
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Grunnskólinn á Blönduósi, Húnavallaskóli, Grunnskóli Húnaþings vestra, Árskóli, Grunnskólinn austan Vatna, Varmahlíðarskóli, Höfðaskóli
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Grunnskóli Dalvíkurbyggðar, Grunnskóli Siglufjarðar, Grunnskóli Ólafsfjarðar
Menntaskólinn á Akureyri
Brekkuskóli, Giljaskóli, Lundarskóli, Oddeyrarskóli, Hlíðarskóli, Glerárskóli, Síðuskóli, Hrafnagilsskóli, Grenivíkurskóli, Þelamerkurskóli, Valsárskóli
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Grunnskóli Siglufjarðar, Grunnskóli Ólafsfjarðar, Grunnskóli Dalvíkurbyggðar, Grunnskólinn á Þórshöfn, Borgarhólsskóli, Hafralækjarskóli, Öxafjarðarskóli, Grunnskólinn á Raufarhöfn, Reykjahlíðarskóli, Vopnafjarðarskóli, Stórutjarnaskóli, Litlulaugaskóli, Brekkuskóli, Giljaskóli, Lundarskóli, Oddeyrarskóli, Hlíðarskóli, Glerárskóli, Síðuskóli, Grunnskólinn í Hrísey, Grunnskólinn í Grímsey, Hrafnagilsskóli, Grenivíkurskóli, Þelamerkurskóli, Valsárskóli
Framhaldsskólinn á Húsavík
Grunnskólinn á Þórshöfn, Borgarhólsskóli, Hafralækjarskóli, Öxarfjarðarskóli, Grunnskólinn á Raufarhöfn
Framhaldsskólinn á Laugum
Grunnskólinn á Þórshöfn, Grunnskólinn á Bakkafirði, Hafralækjarskóli, Öxarfjarðarskóli, Grunnskólinn á Raufarhöfn, Reykjahlíðarskóli, Stórutjarnaskóli, Litlulaugaskóli
Austurland
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Grunnskóli Borgarfjarðar eystri, Grunnskólinn í Breiðdalshreppi, Egilsstaðaskóli, Brúarásskóli, Fellaskóli í Fellahreppi, Seyðisfjarðarskóli, Vopnafjarðarskóli
Verkmenntaskólinn í Neskaupstað
Grunnskóli Reyðarfjarðar, Grunnskólinn á Eskifirði, Nesskóli, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar, Grunnskólinn á Stöðvarfirði, Seyðisfjarðarskóli
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Grunnskólinn í Djúpavogi, Grunnskóli Hornafjarðar
Suðurland
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Grunnskóli Bláskógabyggðar, Ljósaborg, Flúðaskóli, Grunnskólinn í Hveragerði, Grunnskóli Mýrdalshrepps, Hvolsskóli, Grunnskólinn Hellu, Laugalandsskóli, Kirkjubæjarskóli, Vallaskóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, Grunnskólinn í Þorlákshöfn
Menntaskólinn á Laugarvatni
Grunnskóli Bláskógabyggðar, Ljósaborg, Flúðaskóli, Grunnskóli Mýrdalshrepps, Hvolsskóli, Grunnskólinn Hellu, Laugalandsskóli, Kirkjubæjarskóli
Framhaldsskólinn í Vestm.eyjum
Grunnskóli Vestmannaeyja
Suðurnes
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Grunnskóli Grindavíkur, Akurskóli, Heiðarskóli í Reykjanesbæ, Holtaskóli, Myllubakkaskóli, Njarðvíkurskóli, Grunnskólinn í Sandgerði, Gerðaskóli, Stóru-Vogaskóli
Hafnarfjörður
Flensborgarskólinn
Áslandsskóli, Hraunvallaskóli, Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli, Setbergsskóli, Víðistaðaskóli, Öldutúnsskóli
Iðnskólinn í Hafnarfirði
Áslandsskóli, Hraunvallaskóli, Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli, Setbergsskóli, Víðistaðaskóli, Öldutúnsskóli, Garðaskóli, Sjálandsskóli, Álftanesskóli, Digranesskóli, Hjallaskóli, Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Lindaskóli, Salaskóli, Smáraskóli, Snælandsskóli, Vatnsendaskóli
Garðabær
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Garðaskóli, Sjálandsskóli, Álftanesskóli
Kópavogur
Menntaskólinn í Kópavogi
Digranesskóli, Hjallaskóli, Hörðuvallaskóli, Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Lindaskóli, Salaskóli, Smáraskóli, Snælandsskóli, Vatnsendaskóli